25apríl

Myndir komnar og nú er tími kominn á blogg!!

færsla að hætti ThelmunnarSvalur

jæja það er svo mikið búið að gerast! enda heilar 2-3vikur síðan síðast var bloggað!!

En föstudagurinn 20.Apríl, verður ógleymanlegur í hjarta margra ms-inga. stóra stundin var loksins runnin upp, þar sem allir skelltu sér í búninga og opnuðu bjóra kl.7 um morguninn! Brjálað stuð!
Annan okkar hélt morgunpartý og fær hún hrós fyrir það, þegar búið var að drekka í 3klst eða frá 7 sumir frá 8 til 11, var haldið niðrí skóla. Þar var hlupið inní garðinn okkar blessaða og dansað, hrint og hlussast ofan á hvort annað.
þegar búið var að dansa var fengið sér pulsu og skellt sér niðrí bæ.
þaðan burt í kringluna, borðað, sofnað í plokkun og biðstofu, síðan skellt sér í sund, síðan heim og svo loksins í rútu út á land í mat.
Þetta er það skemmtilegasta sem hægt er að upplifa.



ég nennti ekki að hafa langa færslu um dimmiteringuna, því hún gæti verið geðveikt löng!!

En Anna henti inn myndum frá deginum og kvöldinu, þannig endilega tjékkið á því;)

Ég hef nú ekkert að gera þannig ég er að horfa á Fyrstu skrefin á skjá einum! Jesús!! ég sá þegar kona var að fæða barn, og þá meina ég að ég sá allt!!! þetta mun ég ALDREI gera!! Konan var bara Ahhh er þetta ekki að vera Búið, Ahh vont!
og ég er ekki að grínast, ég fór að grenja þegar ég sá þetta! kom alveg tvö heil tár!!Gráta

En nóg í bili.. næsta blogg tekur hún Anna litlaGlottandi
25. apríl 2007 klukkan 20:46
Thelma og Anna
1 athugasemd
25apríl

MyndirMyndirMyndir!!!!!

Komnar nýjar myndir frá dimmiteringunnii!!! Það var sjúklega gamanBrosandi Nenni ekki að blogga núna... kemur meira seinna!!! Bæjó
25. apríl 2007 klukkan 16:30
Thelma og Anna
Engin athugasemd
08apríl

páskafrí

vá hvað páskafríið hefur verið nice!!!
Er reyndar ekkert búin að læra og er með massívt samviskubit yfir því! en svo heill hellingur búinn að gerast, partý, bærinn, drykkjan of mikil, slúðrið að drepa mig og síðan vinnan.
ég og Kolbrún mín höfum verið duglegar í ölinu og ætlar hún meira að segja að taka kvöldið í fyllerí.
En síðan eru 2 mánuðir í stúdentinn!! ég er að drepast herna!!!

En til að deila með ykkur öllum þá hef ég ákveðið að fara ekki strax í háskólann! ég ætla að vinna til janúar og í lok janúar ætla ég að flytja eitthvað út t.d. til DK, Frakklands eða Englands.

ég hef eiginlega ekkert mikið til að segja hérna því ég nenni ekki að skrifa allt saman niður:-/
08. apríl 2007 klukkan 16:37
Thelma og Anna
2 athugasemdir
29mars


Elsku Thelma

Eigðu frábæran afmælisdag sætabrauð!!!




                                                                                          
29. mars 2007 klukkan 18:17
Thelma og Anna
2 athugasemdir
25mars

24.Mars

jæja hendum inn einu bloggi til að halda þessari elsku á lífi..
ég veit að fólk skoðar þessa síðu og les bullið úr okkur, en það er svo latt við commenta!! Slæmt!!

En ég (Thelman) ákvað að halda upp á afmælið mitt þann 24.mars og það heppnaðist ágætlega, ég held að flestir hafi verið mjög ölvaðir og þar er Kol..? mjög gott dæmi um ölvunina ;)
En mætingin var góð, aðallega stelpur sem komust í afmælið mitt, en þó nokkrir strákar:)
Maður var nú helvíti óhress með nokkra aðla sem komust ekki en það verður að hafa það og þeim bara ekki boðið í næsta partý;)
Einnig fékk ég slatta af pökkum sem ég bjóst ekki við, en það var samt æðislegt;) fékk þar á meðal 2 páskaegg:P
En síðan þegar partýið slúttaðist hjá mér, litum við fjögur saman í partý til hans Stófa, sem var mjög gaman... ég tók afganginn af hlaupstaupunum til hans og þeir kláruðu staupin innan við 10mín eða eitthvað(50-60staup).
en síðan var haldið niðrí bæ, byrjuðum á sólon en það var ekki alveg að gera sig... við ákvaðum þannig að rölta yfir á prikið sem var fínt.
 
En skemmtilegasti parturinn er þessi:

Eg(thelma), anna og lena vorum á prikinu og vorum að pæla í að rölta heim. Lena var búin að tala endalaust um hvað hún væri geðveikt svöng. Ég ákvað því aðeins að ljúga að henni... sjáum samtalið:
Thelma: lena, þú veist að það er verið að selja pulsur á barnum!
Lena: ha? í alvöru?
Thelma: já! það byrjaði fyrir svona 2 mánuðum síðan, pulsan er samt frekar dýr, 350kr eða eitthvað.. viltu kaupa þér?
Lena: já, nenniru að koma með mér á barinn?
Thelma: já ekkert mál...

síðan er komið á barinn og lena spyr Önnu, ,,hvar geyma þau eiginlega pulsurnar?" haha anna segist ekki vita það.. síðan fer hún á barinn.

Lena: hmm góðan kvöldið, hvernig mat ertu eiginlega með?

hahahahahaha ein rosalega bjartsýn á að fá pulsu á prikinu
Hlæjandi

En nú er sunnudagurinn kominn og þarf ég mikið að læra, ég þakka kærlega fyrir mig og þakka einnig fyrir þynnkulausum degi;)


25. mars 2007 klukkan 14:29
Thelma og Anna
3 athugasemdir
20mars

Halló.......

Jæja... þá er best að bloggar eikkað svo ég verði ekki kosin versti bloggfélagi ársins hjá Thelmu!!Skömmustulegur
Skólinn alveg að drepa mann þessa dagana og ég get ekki beðið eftir að fara í páskafrí.... Ég verð ein heima alla páskanna þannig að endilega takið road trip á Hvolsvöll að heimsækja mig!!Brosandi Ég veit ekkert hvað ég á að skrifa hérna þannig að ég ákvað bara að gera nokkra puntka um hvað er framundan hjá okkur! Það er ekki mikið að gerast því við þurfum að læra og læra í apríl og maí.... En eftir maí verður svo djammað og djammað.......
Thelma verður 20 ára eftir 9 daga!!! Partý partý partý!!! Hlæjandi
   

                                            
Svo er auðvitað PÁSKAFRÍ eftir 11 daga!!!!!!!Hlæjandi
                                         
Eftir páskafrí verður lært og Dimmiterað 26. apríl!! Kannski ég haldi bara morgunpartý Thelma mín!!!!Glottandi Svo byrja náttlega stúdentspróf 3. maí!!!Gráta Dúxum auðvita í þessum hel**** prófum og útskrifumst með poppi og prakt þann 26. maí.... Þurfum aldrei afur að stíga fæti  inn í MS aftur...

                                        
Svo í sumar verður unnið og unnið...... Hvað ætli þið að gera eftir sumarið??

Jæja... veit ekki hvað ég á að bulla meira..... Endilega commentið og skrifið í gestó... Þú líka Lena Björg RúnarsdóttirGlottandi

KV.... Anna

20. mars 2007 klukkan 15:45
Thelma og Anna
1 athugasemd
02mars



Maður verður nú að fara eftir ósk Lísu sinnar og blogga aðeins, það er ekki eins og maður eigi marga aðdáendur sem lesa draslið sem ég drita niður, en jæja.
Í gær fimmtudaginn 1.mars var árshátið FÁ og það var GEÐVEIKT í fyrirpartýinu sem hún Hildur okkar hélt og það bókstafleg sló í gegn! þar á meðal fór ég (Thelma) og Lísa og lúmskt trúnó við foreldra hennar og vorum að tala um hvað þau ættu hreint frábæra dótturHlæjandi
Án efa var aðalblanda kvöldarins vodki + sprite + magic + lime og + eitt stykki plómaGlottandi
En á ballinu voru PaPaRnIr að spila og var dansað villtum dansi til 2:30, eða var mér sagt, því ég er greinilega ennþá föst á grunnskólastigi í drykkjunni og náði ekki svo langt sem fæti inná balliðÓákveðinn

síðan lengra aftur í tímann, Föstudagurinn 25.feb eða eitthvað álíka, þá var spilakvöld hjá lísu... ákveðið var að spila partý og co og það var soldið vesen að ná í spilið og allt þannig en síðan þegar við vorum allar stelpurnar sestar við borðið (Tinna, laufey, lísa og ég og lena kom síðar) tókum upp spilið, sáum við að það vantaði teninginn! frábært! því Lísa átti ekki einn tening!! en kvöldið var samt æðislegt og haldið var niðrí bæ, beint inn á sólon og tjúttað af sér rassgatiðUllandi

Svo má líka segja frá árshátíð Laugarásbíó sem var haldin á Nasa á laugardeginum, þvílík geðveiki!!! okkur var boðið í mat, áfengið var allt frítt, ALLT kvöldið og sálin hélt lífinu uppi.
Tekið var söngvakeppni, tekílað var á staðnum og bjór hellt yfir ákveðnar stelpur(Kolbrún og Margrét), sorry!! eða nei ég og pottþétt Sandra sjáum ekkert eftir því að hafa hellt bjór og passova yfir ykkur því það var svo fyndið að sjá ykkur, reyna að vera geðveikt reiðar, en það virkaði ekki..!! HAHA

en ég nenni ekki að hafa þetta lengra og ég vona að einhver fyrir utan Lísu lesi þettaGlottandi
02. mars 2007 klukkan 19:58
Thelma og Anna
5 athugasemdir
22febrúar

smá um lífiđ og tilveruna;)

þessi síða gengur bara helvíti ágætlega, við erum ekkert það latar við að blogga sem kemur mjög á óvart og gleðifréttir!!! á laugardaginn mun ég henda inn sem flestum myndum, þær eru komnar inná tölvu..LOKSINS!!

En þessi vika verður svo leiðinlega! við byrjum á því að læra fyrir sálfræðipróf og vinna, síðan er það annað próf næsta dag og eftir það þarf ég að drullast til að klára kjörsviðsverkefniÖskrandi

En Vil benda á að Fimustu skautastelpurnar á landinu eru að fara að keppa á laugardaginn 24.feb á AK... ég persónulega held með Hildi SkautagelluGlottandi

laugardagurinn 24.febrúar er hinn heilagi dagur í laugarásbíói! því það er árshátíð hjá okkur!!!!!!!! árshátíðin verður haldin á Nasa, boðið verður upp á geðveikan mat, drykki og svo auðvitað heldur Sálin uppi dansinum á dansgólfinu langt fram á nótt!
ég held að nasa verður síðan opnað almenningi eftir klukkan 12 og ALLIR að mæta!!Glottandi

EiNNig er árshátíð FÁ að nálgast og er ég að pæla í að fara með nokkrum gellum þar sem maður fór ekki á sína eigin árshátíðSkömmustulegur

En eg er haldin áfram að læra og reyna að standa mig eitthvað í skólanumBrosandi

Kv. Thelman
22. febrúar 2007 klukkan 00:29
Thelma og Anna
3 athugasemdir
18febrúar

Smá blogg!!;)

Hello people! Kominn tími á smá upload á þessari síðu sem gengur bara nokkuð vel hjá okkur! Nema að það vantar ennþá myndir en þær fara að koma bráðum!Brosandi  Árshátíðarvikan búinn í skólanum og var hún bara alveg ágæt!! Fórum á fyrirlestra og horfðum á ótrúlega leiðinlega enska mynd...Fýldur en svo á fimmtudagskvöldinu skelltum við okkur ásamt stelpunum í bekknum út að borða á Caruso, mjög góður matur þar! Eftir matinn ákváðum við að kíkja aðeins á Sólon, en hápunktur kvöldsins var án efa þegar hællinn brotnaði af stigvélinu mínuGrátastelpunum til mikillar skemmtunar!!! 
                         


En fékk skó hjá henni Thelmu minni sem voru BTW allt of stórir og labbaði eins og hæna allt kvöldið!!  Svo kíktum við á Hverfis og fórum svo heim!! Takk fyrir skemmtilegt kvöld stelpur, verðum að endurtaka þetta einhverntíman við       tækifæri!!Brosandi 

Þegar ég kom heim pakkaði ég niður, brunaði til Keflavíkur og stökk upp í flugvél til Danmerkur með henni mömmu!! Síðan hoppuðum við upp í lest til Arhus þar sem elskulega stóra systir mín og sætu frænkur mínar tóku á móti okkur!!
Kíktum aðeins í bæinn í gær og verslaði ég pínu!!Brosandi en á morgun og hinn verður kortið vel straujað!!Glottandi

                                               

Ég vona að þið hafið öll skemmt ykkur vel um helgina..... Sjáumst á miðvikudaginn!!
Bæjó....
 
  
 
18. febrúar 2007 klukkan 17:24
Thelma og Anna
3 athugasemdir
08febrúar

stutt og laggott

Ég ákvað að henda inn einu stuttu bloggi hérna! Ég er að fara á æfingu eftir hálftíma og það verður gjörsamlega tekið á því.. annars er pínu vesen með myndirnar, ég kann nefnilega ekkert á þetta blogg!:)
Á morgun er svo Móralskt kvöld með Gerplu genginu, sem er fimleikafólkið sem ég er að æfa með, ég held að þetta verður bara mjög gaman! Ég, Lísa og Krissa systir ætlum að mæta með kannski eitt stykki bjór eða eitt stykki svala, hver veit???;-)



Svo vil ég líka óska henni Margréti til hamingju með að mæta í skólann á þriðjudaginn;) ekki oft sem að stelpan lætur sjá sig!!!
Svo er það hann Þorgils okkar sem átti afmæli fyrir stuttu og varð kjeppinn 20 ára!! Til hamingju með það;);)
Og svo má ekki gleyma honum Helga sem er djammandi út og suður til að fagna því að hann sé orðinn 20 ára gamall!! Til hamingju Helgi Minn!!



En ég er nú að skora á hana Önnu mína til að skrifa eitt stykki blogg herna og hjálpa mér með þessar myndir;)

08. febrúar 2007 klukkan 18:44
Thelma og Anna
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

*Um okkur*

Auglýsing

Könnun

Hvađ eiga Thelma og Anna ađ gera eftir skólan??